Ég ætla allavega að skrifa smá hér um síðustu helgi.
Til hægri sjást nemendur bíða eftir báti við höfnina.
Við fórum í útilegu til Seton Lake, það er vatn sem er u.þ.b. 30 mín héðan. Þetta var útilega fyrir 11 og 12 bekk. 10 bekkur fór annað. Þessi síðasta útilega ársins er orðin að hefð. Útskriftarbekkurinn skipuleggur allt og kemur öllu í framkvæmd og þetta er eiginlega helgi þar sem þeir afhenda 11. bekk stöðuna sem útskriftarbekkur. Krökkunum í útskriftarbekknum er ætlað að bera ábyrgð og vera leiðtogar og fyrirmyndir fyrir yngri n
Á föstudagsmorgninum fórum við héðan í tveimur rútum og svo sigldum við yfir vatnið að "tjaldsvæðinu" reyndar er þetta ekki tjaldsvæði, bara grjótströnd og skógur. Skólinn á tvo spíttbáta og svo heimasmíðaðan húsbát og heimasmíðaða flatbytnu. Skólastjórinn er ekkert smá handlaginn og hann smíðaði báða bátana. 

Við komum allavega öllum nemendunum yfir vatnið og það var svo ótrúlega gott veður. Það var mjög hlýtt. Krakkarnir voru ekki lengi að skella sér á vatnaskíði og eftir kvöldmat var sólarlagsbæn og svo fórum við að sofa. Ég var svo spennt að fá að nota hengirúmið hans Esra aftur.
Vinstra megin sést húsbáturinn og flatbytnan er hægra megin með kanóa í eftirdragi.
Við komum allavega öllum nemendunum yfir vatnið og það var svo ótrúlega gott veður. Það var mjög hlýtt. Krakkarnir voru ekki lengi að skella sér á vatnaskíði og eftir kvöldmat var sólarlagsbæn og svo fórum við að sofa. Ég var svo spennt að fá að nota hengirúmið hans Esra aftur.
Á Laugardagsmorgninum fengum við pönnukökurnar með sítrónusósu og ferskjum. Svo hélt elsti bekkurinn kirkju á ströndinni og eftir það voru allir bara að leika sér á vatnaskíðum eða "vatnabretti" svo vorum við líka með 12 kanóa svo að maður gat farið í smá eftirmiðdags siglingu eða bara fara í skemmtiferð á spíttbátunum. Svo á skólinn líka eina sæþotu. Eftir hádegismat færðum við alla yfir á aðra strönd til að fara í gönguferð. Ég og einn strákavistarstjóanna tókum hóp af krökkum á kanóum yfir á hina ströndina. Það tók örugglega 30-40 mín að fara yfir á kanóum. Eftir gönguferðina og litla samkomu fórum við aftur á ströndina þar sem við gistum. Eftir kvöldmat höfðu þau aðra samkomu og svo grilluðu þau banana og átu þá með kexi og nutella. Þau skiptu hópnum í marga litla hópa til að hvetja hvert annað og gefa hvort öðru ráð fyrir næsta ár og bara að kynnast aðeins betur. Það er gaman þegar nemendurnir eru uppteknir því þá fáum við frí. Það var mjög gaman að sitja á ströndinni með hinum vistarstjórunum og tala saman og hafa það skemmtilegt. Svo var ótrúlega gaman að fara að sofa. Það er bara eitthvað sérstakt við það að sofa úti. Ég sef alltaf miklu betur.
Á sunnudagsmorgninum eftir morgunmat var frítími og sumir krakkarnir voru byrjaðir að skíða klukkan 6 um morguninn. Ég pakkaði öllu dótinu mínu niður svo ég þyrfti ekki að hugsa um það seinna. Svo fór ég með Rosu (vistarstjóra stelpnanna) í smá kanóaferð.
Við vorum bara að skoða okkur um. Ég varð allavega miklu sólbrúnni í þeirri ferð. Nefið á mér er sérstaklega áberandi. Við fundum margt áhugavert m.a. stelpur sem höfðu stungið af á kanóum til að fara í sólbað, svo fundum við líka hús sem að bifur hafði búið til. Það var mjög gaman, svo komnum við til baka og borðuðum hádegismat. Svo pökkuðu allir niður og við gerðum okkar besta að koma öllum heim, þó það hafi tekið langan tíma. Það er erfiðara en það hljómar að reka á eftir 75 manns.
Það var allavega frískandi að komast aðeins í burtu yfir helgina og ég held að það hafi allir komið heim sáttir.
Mamma og Esra eru að fara til Íslands á fimmtudaginn. Esra mun missa af síðustu skólavikunni og útskriftinni en ég held að hann sé feginn að komast heim.
Ég er búin að skrá mig í HÍ og ég hlakka lúmskt til að byrja aftur í skóla. Ég er líka búin að sækja um í Tónlistarskólanum og það verður því fullt að gera á næsta ári. Það er samt auðvitað leiðinlegt að hætta hér en ég myndi ekki skipta þessu ári út fyrir neitt annað.
Kveðja,
Elísa