18 June, 2012

Nú er ég búin að vera hér í Kanada í 1 mánuð, tíminn líður hratt. Ég kem heim eftir viku. Þessi næsta vika mun líða hratt, útskriftin er næsta sunnudag og það er búist við mörghundruð gestum og það verður mikið program og margt að gerast. Hér eru örfáar myndir sem ég tók á síðustu 4 vikum.
Esra í vinnunni, honum finnst gaman að fá að keyra ruslabílinn.
Díana að skrifa ritgerð um boðskap englanna þriggja með vinkonu sinni.
Allir að hjálpa til við að búa til ávaxtapizzu í útilegunni.
Lúxus útilegumatur, taco salad, ice tea, salsa, tortillas bakað á staðnum, lemon squares og sýrður rjómi. Allt vegan að sjálfsögðu!

Elgur sem ég sá í Banff.
Esra að útskýra hvernig best sé að nota hengirúmið...
Að bíða eftir bátnum :)

Fæða þessa myndarlega dýrs er 85% grænmetisfæði.