15 April, 2011

15. Apríl 2011

Ég fór niður í ávaxtagarð um daginn og náði í nokkrar apríkósutrjágreinar. Krakkarnir höfðu verið að klippa trén til og það voru margar litlar greinar liggjandi útum allt. Trén voru rétt að byrja að blómstra þegar ég sótti greinarnar. Ég setti þær í vatn í krukku og morguninn eftir voru þær búnar að blómstra. Ég vissi ekki að þær myndu blómstra svona hratt.
Eftir að allir voru sofnaðir í gær tók ég stutt myndband af herberginu mínu svo þið gætuð séð hvar ég bý en þessi síða leyfir bara 100mb myndbönd og mitt er svo miklu stærra, ég ætla að reyna að finna út úr því seinna. Það verður mikið að gera þessa helgi. Það er "board weekend" en stjórnarráð skólans er hér að funda og þau verða hér alla helgina. Það verður allavega nóg að gera og ég trúi því bara ekki að apríl sé hálfnaður. Ég kem heim til íslands eftir 9 1/2 viku. Það er ekki mjög langt þangað til, sérstaklega ef tíminn heldur áfram að líða svona hratt. Ég hef lítið meira að segja í bili. Endilega skiljið eftir einhverja kveðju undir "comments" hér fyrir neðan :)
Kveðja,
Elísa

1 comment:

  1. Hae Elisa! Thad er greinilega komid vor og sumar lika hja thjer. Sidast thegar jeg vissi var snjor i Reykjavik. Jeg er buinn med vormisseri og byrja strax a sumarmisseri. Er ad flytja til Erlings eftir eina viku en verd thar thad sem af lifir sumars. Skemmtu thjer i Kanada! JHS.

    ReplyDelete