16 May, 2011

15. Maí 2011

Í dag er sunnudagur og hann er búinn að vera mjög lengi að líða, en samt ótrúlega fljótur. Síðasta fimmtudag ætlaði ég að reyna að komast til Abbotsford til að hitta Esra og mömmu en farið mitt hætti við að fara. Ég hafði reiknað með að missa af fiðlutímanum en ég þurfti að drífa mig og æfa mig aðeins fyrst ég ætlaði að fara í hann. Kennarinn minn er mjööööög spes. Sko, mjöööög spes.

Á föstudeginum fór ég niðureftir og hitti mömmu og Esra. Ég var með þeim um kvöldið og svo allan laugardaginn. Um kvöldið fórum við á Fountainview tónleika í Abbotsford.. örugglega þeir lengstu sem við höfum haldið 2klst og 15 mín!! Aðeins of langt, en svo fór ég aftur "heim" með skólanum. Við komum hingað klukkan 1 um nóttina og ég var svo þreytt að ég svaf yfir mig í morgun. Ég ætti að vera í fríi núna í kvöld en ég ákvað að vinna til að bæta upp fyrir morguninn.

Það er annars voða lítið í fréttum. Esra líður betur og nefið er að lagast. Hann fer til læknis á fimmtudaginn og svo fer mamma heim á föstudaginn. Þá kemur Esra aftur á skólann.


Eins og þið vitið þá er skólinn í dal í British Columbia og Fraser river rennur í gegnum dalinn. Það er alveg ótrúlegt að hugsa að ég fyrir ekki svo löngu var allt morandi í indjánum. Svo komu kínverjarnir að sigta gull úr ánni. Lillooet, þessi pínu litli bær var einu sinni stærsti bær norðan af San Fransisco og vestan af Chicago. Mér finnst alltaf gaman að pæla í því hvernig allt var áður fyrr og ég get bara ímyndað mér öll indjánatjöldin úti um allt.

Það eru bara 5 vikur þangað til að ég kem heim svo ég ætla að reyna að vinna eins mikið og gera eins margt og ég get á meðan ég er hér.

Ég hefði ekkert á móti því að sjá nokkra birni áður en ég fer, auðvitað vil ég ekki fá þá of nálægt, en samt ná einni mynd af birni.

Læt ykkur vita ef eitthvað spennandi gerist,
kveðja,
Elísa

P.s. Ég veit ennþá ekki hvað ég ætla að læra þegar ég kem heim! Alltaf jafn óákveðin ;)

No comments:

Post a Comment