Það er klukkutími þangað til að hádegismaturinn verður tilbúinn þannig að ég ákvað að skrifa dálítið. Í gær fékk ég að kenna bekknum hans Esra leikfimi. Það var mjög gaman og ég reyndi að hafa mjög erfiðan tíma vegna þess að mig langaði að hreyfa mig aðeins. Ég hlýt að hafa gert eitthvað rétt því ég er með svo miklar harðsperrur að ég get ekki einu sinni skrifað án þess að finna til.
Eins og þið flest vitið, þá er skólinn að fara í ferðalag til Hawaii. Við erum að fara að mynda nýjan disk. Það er mjög spennandi en það er líka mjög mikið sem þarf að gerast áður en við förum. Við leggjum af stað eftir 4 daga og það er brjálæðislega mikið sem við eigum eftir að gera þannig að næstu dagar verða rosalegir. En það er bara gaman.
Við erum alltaf að reyna að bæta vistina og í dag fengum við hlaupabretti svo að stelpurnar geti hlaupið niðri í kjallara. Vona að þetta verði ekki of hávært því þær munu örugglega byrja klukkan fimm á morgnana og þetta er fyrir framan herbergið mitt. Svo erum við búin að panta gufubað, sem er samt ekki gufu-bað bara svona kassi sem maður situr inní.
Fountainview hefur alltaf verið þekktur skóli fyrir að vera með rosalega góðan mat. Núna er maturinn orðinn enn betri og við erum búin að setja upp salatbar sem er ÓTRÚLEGUR! Þetta er örugglega 3-4metra langt borð sem er með 5 tegundum af salati svo eru tómatar, agúrkur, grænar,gular og rauðar paprikur, grænar og rauðar ólífur, þistilhjörtu, laukur, alfaalfa spírur, allskonar baunir, vegan tofu kotasæla, 4 tegundir af salatdressingu, brauðteningar, og flögur til að setja undir þetta allt. Þegar maður er búinn að fá sér salat þá er eiginlega ekkert pláss eftir á disknum. Núna borða ég heilan disk af salati og fæ mér svo kartöflur eða eitthvað svoleiðis og ég verð ekkert svöng fyrr en bara næsta morgun. Ég er hætt að borða kvöldmat því hádegismaturinn dugar alveg. Morgunmaturinn er líka orðin rosalega góður við fáum lummur með berjasósu og eplasósu einu sinni í viku eða aðra hverja viku, svo fáum við biscuits and gravy, svo fáum við oft kryddaðar kartöflur eða scrambled tofu. Biscuits and gravy og breakfast burrito er uppáhaldið mitt samt. En það er líka alltaf hafragrautur og cream of wheat og auðvitað brauð og morgunkorn.
Mér finnst allavega mjög gaman að borða og ég tala eiginlega bara um mat allan daginn. Ég er byrjuð að pakka fyrir Hawaii en mamma og pabbi þurfa að koma með stóra ferðatösku því ég ætla að láta þau fá föt og bækur sem ég þarf ekki lengur og vil senda heim. Það er ekki séns að ég nái að taka allt dótið mitt með heim í sumar í aðeins tveimur ferðatöskum! Eins gott að Esra geti tekið dót fyrir mig.
Það var farið að hlýna hérna en það kólnaði aftur. Það var peysuveður og svo byrjaði bara að snjóa. Ég fór í útilegu síðustu helgi. Reyndar sváfum við bara úti eina nótt en við löbbuðum upp á fjall hérna rétt hjá og gistum þar. Það var mjög kalt úti en það er margt ævintýrafólk hér svo þau tóku bara svefnpokana sína og segldúk og sváfu bara undir berum himni. Ég ætlaði að gera það en ég vildi ekki að svefnpokinn myndi blotna því ég er með dúnpoka. Sem betur fer ákvað ég og 2 aðrar stelpur að taka tjald fyrir okkur ef það skyldi rigna eða snjóa. Og já, það snjóaði blautum slabb snjó alla nóttina og tjaldið var ekki vatnshelt en ég blotnaði ekki eins mikið og hinir. Strákarnir hjuggu nokkur tré og kveiktu varðeld sem hélt öllum hlýjum. Við vorum með tvo hunda með okkur og einn hundurinn þefaði uppi rottuhreiður og einn strákurinn kom til baka með nokkra rottuunga og sagði að hundurinn hefði étið hina en við báðum hann um að setja ungana til baka því þeir myndu örugglega ekki lifa af með okkur því þeir voru svo litlir að þeir voru ennþá blindir. Mamman hlaut að vera einhverstaðar nálægt.
Eins og þið vitið vel er ég ekkert mikið fyrir leiki en krakkarnir sem voru með voru svona krakkar sem eru með endalausa orku og eru alltaf að gera eitthvað þannig að alla helgina vorum við í capture the flag eða einhverjum leikjum sem krefjast þess að maður fari útum víðan völl og sé alltaf að búa til eitthvað plan. jújú, ég passaði fánann, ég sá hann vel frá snjóbælinu mínu.
Þegar við komum til baka á sunnudeginum var ég mjög þreytt en samt mjög "refreshed". Á sunnudagseftirmiðdeginum vildu sömu krakkarnir "gera eitthvað", NÝkomin úr útilegu þannnig að einn strákavistastjórinn fór með þau í næstu brekku og þau renndu sér á sleðum allan eftirmiðdaginn.
Það sem er í gangi núna er bara undirbúningur fyrir Hawaii og á sama tíma erum við að reyna að klára eins mörg viðtöl og við getum. Þá er ég að meina viðtöl við krakka sem vilja koma hingað á næsta ári. Hvert viðtal er u.þ.b. 1- 1 1/2 klukkutími en það er erfitt að koma þeim fyrir því við getum bara gert okkar nemendur eru í skólanum því þá erum við laus en þá eru umsækjendurnir líka í skóla þannig að þetta er flókið. En við náum vonandi að klára nokkur áður en við förum til Hawaii.
Það er ótrúlega gaman að fá að vera vistarstjóri, ég hef örugglega sagt þetta áður en ég er alltaf að læra eitthvað nýtt. Þetta er svona lærdómur sem ég get ekki alveg sett í orð. Maður þarf að hafa gott innsæi og vera naskur. Ég hef bara lært að eiga við allskonar mismunandi persónuleika, vandamál og agabrot. Svo eru auðvitað stelpur sem þurfa alltaf athygli og aðrar sem vilja athygli en reyna að láta eins og þær vilji ekki athygli en samt eru þær að biðja um athygli með því að láta þannig. Já, foreldrar reyna að skilja þessar 1-2 dætur sem þau eiga og svo erum við hérna fjórar og krafan er að við getum skilið, agað og hjálpað öllum 56. gaman gaman.
Bestu kveðjur,
Elísa
P.s. ég setti inn eina mynd frá Kaliforníuferðalaginu. Við fórum á strönd rétt hjá San Diego og ég minni ykkur á að þetta var í desember. Myndin virðist skökk en það er bara útaf því að göngubrúin fyrir aftan mig er ekki bein.
Elísa, frábær síða hjá þér og alltaf gaman að lesa pistlana þína. Hlakka til að heyra frá Hawai ferðinni :) Hafið það rosa gott og góða ferð. Knús á ykkur bæði.
ReplyDelete