23 May, 2011

23. Maí 2011

Um helgina fór ég í útilegu. Meirihluti skólans fór snemma á föstudagsmorgninum en ég fór með seinni hópnum sem gat ekki farið fyrr því krakkarnir voru í samræmdu prófi. Við fórum til Wells Gray Provincial Park sem er u.þ.b. 5 klst í burtu. Við lögðum af stað um hádegi en hinir höfðu farið snemma um morguninn. Þegar við vorum komin inn í þjóðgarðinn þá vorum við ekki alveg viss hvar tjaldsvæðið var en við vorum allavega á réttri leið. Svo sáum við Fountainview rútu en það leit ekki út fyrir að við værum á tjaldstæði.

Hinn hópurinn hafði farið í gönguferð svo við fórum niður sama stíg og fundum þau loksins.
Þarna í miðjum þjóðgarði langt frá öllu sáum við gamalt býli sem hafði verið yfirgefið.
Á göngustígnum var svo mikið af elgsskít að það var ekki fyndið, það var stór hrúga á 3metra fresti. Við sáum því miður engan elg en við sáum lítinn íkorna.Það átti víst að vera mikið um birni á svæðinu en því miður sáum við enga birni.



Þegar við loksins fundum hinn hópinn voru þau að skoða öldkeldu með náttúrulega kolsýrðu vatni.








Ég man eftir því að hafa séð eitthvað þvílíkt á Snæfellsnesi og þurft að drekka heila flösku af því. Ameríkanarnir gátu ekki drukkið þetta því það var smá járnkeimur á vatninu. En auðvitað hafði engum dottið í hug að ætlast til að fólk gæti drukkið þetta svo sem betur fer vorum við með nokkur kíló af sykur-drullu-safa-dufti. Ég er ekki að ýkja, þau gátu ekki drukkið einn sopa en þetta var svo miklu mildara en ölkeldan á Íslandi og Íslendingar hafa hingað til haft þetta af. Eftir gönguna fórum við upp á tjaldsvæðið, það var mjög fínt og það var meira en nóg pláss fyrir alla. Tjaldsvæðið var inni í skógi og ég setti upp hengirúmið hans Esra og svaf mjög vel í því. Reyndar var mér mjög kalt fyrstu nóttina en svo fékk ég lánuð nokkur auka teppi og eftir það svaf ég ótrúlega vel. Það er svo þægilegt að sofa úti, loftið er svo ferskt og það var risastór á rétt fyrir aftan girðinguna og ég heyrði í ánni allan sólarhringinn, það var svo róandi.

Við vorum með aðstöðu til að setja upp nokkrar gashellur og þar elduðum við allan matinn. Á Laugardagsmorgninum héldum við kirkju úti í skóginum, það var ótrúlega fínt, enda lítill hópur. Svo eftir hádegi fórum við að skoða Helmcken waterfalls sem er risa foss. Þegar við vorum búin að skoða hann frá útsýnisstaðnum þá keyrðum við á annan stað og gengum að honum þannig að við stóðum við efst á myndinni, við hliðina á fossinum og horfðum niður í gljúfrið. Svo sáum við líka regnboga. Á leiðinni til baka byrjaði að rigna og við vorum fegin að komast aftur á tjaldsvæðið og borða kartöflumús. Svo eftir smá kvöldstund sátum við í í kringum varðeld og fórum svo að sofa. Þetta er alveg útilega af mínu skapi, það er sko sjaldgæft að vera með hóp af unglingum 15-19 ára sem hlýða, eru kurteis og fara að sofa klukkan 22:00 á Laugardagskvöldi. Ég svaf ekkert smá vel þá nótt og svaf aðeins yfir mig. Við borðuðum morgunmat og pökkuðum svo öllu dótinu saman. Á leiðinni heim stoppuðum við í Kamloops og borðuðum á Subway. Svo komumst við loksins tilbaka og ég fór í langþráða sturtu.

Mamma og Esra komu hingað á sunnudagskvöldinu og eru hér núna. Esra er að læra á fullu til að ná öllu sem hann missti af.

Í dag var vistarstjórafundur klukkan 13 og hann var búinn klukan 15:30, og þá byrjaði fríið mitt. Ég er í fríi þangað til klukkan 13 á föstudaginn. Satt að segja hef ég hingað til allavega unnið á hverjum einasta frídegi sem ég hef fengið. Kannski að ég taki smá frí. Það er bara svo gaman að vinna hér.

Kveðja,
Elísa






2 comments:

  1. Ingibjörg Þ.Þ.25 May, 2011 21:35

    Mikið er gaman að sjá hvað allt gengur vel - kveðja til hans bróður þíns?
    Imba

    ReplyDelete
  2. Anna Margrét25 May, 2011 22:55

    Ég hefði sko ekki viljað sjá birni Elísa mín ;) Gaman að þér þykir gaman í vinnunni en vona nú samt að þér finnist ekki of gaman því við viljum fara að sjá þig hérna heima. Skrýtið að hafa bara mömmu þína og pabba tvö í kotinu hér við hliðina. Farið nú varlega og knúsið Esra frá okkur öllum hér heima, við hugsum mikið til hans, sérstaklega einn gutti hér sem sér ekki sólina fyrir honum. Hann biður innilega að heilsa honum og ætlar sér í vatnsstríð í sumar með Esra :)

    ReplyDelete