06 May, 2011

6. Maí 2011

Sæl verið þið og margblessuð,

Mamma er komin til Kanada. Hún er búin að vera hér í viku og hún er með Esra á spítalanum. Hann var svo óheppinn að fá "juvenile nasopharyngeal angiofibroma" sem er æxli í nefinu. Sem betur fer er það ekki of alvarlegt og þeir eru að fara að fjarlægja það í dag eftir 2 klst. Aðgerðin er samt frekar löng og mun taka u.þ.b. 3-5 klst. Áður en Esra fór til Vancouver, þar sem hann er núna, fór hann 6x á spítalann í Lillooet... og læknarnir þar héldu að hann væri bara með svona þurrt nef sem blæddi klukkutímum saman. Svo fór hann til Kamloops og læknirinn þar sá þetta strax og sendi hann til Vancouver. Það er víst bara einn maður í British Columbia sem framkvæmir þessa aðgerð. Þetta er mjög sjaldgæft æxli og það er ekkert hægt að gera til að koma í veg fyrir að það myndist. Það er tengt hormóna einhverju og aðeins unglings piltar geta fengið það.

26. Apríl var ég í fríviku. Rosa (sem er aðal vistarstjórinn og yfirmaður minn) og Jay (maðurinn hennar og aðstoðar strákavistarstjóri) voru líka í fríi. Við ákváðum að gera eitthvað saman svo við keyrðum aðeins í burtu og fórum í gönguferð. Það var ótrúlega gaman, fyrst stoppuðu þau reyndar hjá konu sem átti fullt af kettlingum sem hún var að reyna að gefa, þeir voru ekkert smá sætir. Ég er með mynd hér af einum kettlinginum í hendinni á Jay.

Síðustu helgi var lítið tónleikaferðalag. Sem betur fer fórum við ekki langt, við fórum eiginlega lítinn hring.. eða lítinn á Canadískri vísu, lengsta rútuferðin var 4klst, sem er alls ekki slæmt miðað við Kaliforníu ferðalagið.

Við erum alltaf jafn upptekin hér og viðtölin eru ennþá í fullum gangi. Ég trúi því varla að það sé bara 6 1/2 vika þangað til að ég komi heim. Ég er alltaf jafn stressuð og óákveðin með það hvað ég eigi að læra. Sendi reyndar einn laaaaaaangan tölvupóst til námsráðgjafa í HÍ í dag. Svo sendi ég annað bréf til skóla sem ég þori ekki að nefna á nafn. "Þetta verður bara allt að koma í ljós." Ja, það er sko auðvelt að segja það... en ég hef bara 1 mánuð mínus 1 dag til að sækja um.
En þangað til ætla ég bara að njóta betra veðursins.. fyrst það er ekki orðið gott ennþá og borða bara nógu mikið af ólífum og ótrúlega góðu tofu kotasæluna sem þau búa til hérna.

Ég var svo sniðug að ákveða að taka myndavélina með síðustu helgi í ferðalagið. Ég ákvað samt að vera ekkert að taka alltof margar myndir. Síðasta daginn kippti ég henni upp því við stoppuðum í flottum garði og borðuðum veggie hotdogs og root beer floats. Og getiði hvað? Batteríið var ennþá í hleðslutækinu heima á skólanum. Frábært, ég hélt á þessari myndavél, sem by the way fyllti hálfa töskuna, yfir heila helgi og það var ekki einu sinni batterí í henni. Hún hlýtur nú samt að hafa verið aðeins léttari fyrir vikið.

Klukkan er núna 11:30 og ég á aðeins hálfa klukkustund eftir þangað til að ég þarf að fara að vinna. Ég ætla því að fara og æfa mig smá (djók) og gera nokkrar armbeygjur (ennþá meira djók).


Vona að þið eigið ánægjulega helgi,
kær kveðja,
Elísa
Hér er mynd af einhverjum indjánateikningum sem við sáum í gönguferðinni.

2 comments:

  1. Anna Margrét06 May, 2011 20:40

    Elsku Elísa það er alltaf jafn gaman að lesa bloggið þitt :) Ohh hvað okkur hlakkar til fá ykkur heim. Við hugsum til Esra og biðjum fyrir honum svo fær hann langt knús þegar hann kemur heim! Líst vel á armbeygjurnar ;) Hafðu það sem allra best um helgina. Knús á þig.

    ReplyDelete
  2. Elsku Elísa, gaman að lesa bloggið þitt og gott að heyra hvað þú nýtur þín þarna úti:)
    Við hugsum til ykkar v/Esra, þessar fréttir komu mér mjög á óvart, ótrúlegt hvernig æxli getur herjað á hina ólíklegustu einstaklinga.. við hugsum til ykkar og biðjum Guð að vera með ykkur. Knús til ykkar allra, og gott að heyra að mamma ykkar er hjá ykkur :)

    ReplyDelete